Omg 3-C er tótallí í sumarfríi skilurru
Aðrar bekkjarsíður
Bloggarar
14.09.2006 01:18:10 / 3bekkurc

3.c?

hæ krakkar mínir, ég sakna ykkar, ó gamli bekkur! þó svo að x-ið sé nú afar svalt líka. allavegana þá var ég að spá hvort að ykkur langaði ekki að hittast öll saman heima hjá mér? allir að koma með eitthvað ætilegt eða drykkjarhæft og svo spjöllum við saman, borðum góðar veitingar og rifjum um skemmtilegar minningar? eruð þið ekki geim í þetta? ég var að spá í miðvikudaginn kannski í næstu viku? þetta er ekkert víst, en langar að vita hvernig þetta leggst í ykkur litlu ungar. (úffpúff, magni í 4.sæti að vera sendur út.) anyways þá ætla ég ekki að orðlengja þetta frekar lots of love-lilja

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 09:19:04 / 3bekkurc

stundin er runnin upp

eftir einungis 4 klukkustundir og fímm mínútur munum við formlega ekki vera 3. bekkur c lengur. einhver lagði til að við myndum gefa næsta 3-c síðuna, persónulega líst mér vel á það :) Mér leiddist smá svo ég ákvað að skella einu bloggi hérna inn. kristó vakti mig með símhringingu kl. 20 mínútur yfir 8..takk kærlega kristó! þar af leiðandi er ég soldið á undan áætlun ;) ég elska ykkur öll krúsíbollurnar mínar og mig langar bara að þakka ykkur fyrir frábært ár. verið þið heil og sæl Lilja Kristinsdóttir

» 12 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 20:57:57 / 3bekkurc

Bless litlu lömb

Jæja… þá er komið að því. Ég sæki stundartöfluna mína í MH á morgunn. Ætlaði bara svona að kveðja ykkur í síðasta sinn. Kannski ég dragi Ragga e-n tíman með mér í heimsókn til ykkar í vetur;);)? Bæjó;) Hafdís

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 17:33:04 / 3bekkurc

nýir bekkir

sælir gömlu bekkjarfélagar. í dag hringdi ég upp í okkar ástkæra skóla að spyrja hvernig þetta væri nú með bekkina. hvort við myndum öll(nema nátt.2) fara í sama bekkinn (4.x) eða skiptast upp. svo er nú raunin að við skiptumst upp lömbin mín og þykir mér það mjög leitt. það sem er á innunni er rétt og bekkjarlistarnir eiga víst að koma inn bráðlega. en endilega skrifið í komment í hvaða bekk þið lendið. sjálf er ég í 4.x ;)

kv. lilja kristins


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 23:39:34 / 3bekkurc

Ekki sátt.

Fjörtíu og tvö prósent þessa bekkjar, sem ég áður hélt yndislegan, hefur kosið ,,Lilja..þegiðu" ég verð að segja að mér finnst þetta gífurlega móðgandi og er í alla staði afar sár. Ég sem hélt að öll dýrin í skóginum okkar fagra væru vinir. En nú langar mig að hætta þessari neikvæðni. Snúa mér heldur að því jákvæða sem allir Íslendingar sjá í sínu lífi þessa dagana. Það er hún blessuð sólin sem allt elskar. Já, veðrið hefur svo sannarlega leikið við okkur þessa dagana og langar mig alls ekki að kvarta undan því! :D Það eru nú reyndar ekki allir Íslendingar sem elska sólina, til dæmis var ég að vinna með stórfurðulegri stúlku um helgina sem hatar sól og finnst vatn vont!! Ég fór nefninlega aftur upp í sveitina um helgina að hjálpa til að hestaleigunni blessaðri. Ég get ekki annað sagt að ég sakna þess hrapalega að vera þarna upp í sveit og er jafnvel að huga að því að vinna þarna á næsta ári. Þá er ég með bílpróf og get keyrt heim svona inn á milli. Anyways þá langar mig bara að segja ykkur að ég sakna ykkar aðeins of mikið litlu hunangsbossar og ég vona svo sannarlega að við lendum sem flest aftur saman í bekk (helst bara öll)!! Hafið það sem best sem eftir líður sumars, skemmtið ykkur svakalega og ekki brenna of mikið í sólinni ;) Ykkar elskulega bekkjarsystir, lilja kristinsdóttir

» 6 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 20:30:08 / 3bekkurc

Partý?!!?

Þar sem þið voruð að tala um að hafa partý þá vill svo til að ég er einmitt að halda partei á morgun.. Lítill fyrirvari, var bara að ákveða þetta en þið megið endilega kíkja.. ;)

Kv Sara..


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 23:10:40 / 3bekkurc

Bekkjar-upplyftingar í sumar, anyone?

Er ekki um að gera svona rétt áður en 3-C bekkurinn er gjöersamlega úr sögunni að halda one finale bekkjarpartý ? Ég meina það er sumar það hlýtur eitthver að vera einn heima í partýfíling...... think about it people.

Erla Djammari


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 23:52:17 / 3bekkurc

Flutningar

Jæja, sælir krakkar mínir!

Núna er loksina að komast á hreing hverjir verða saman í bekk og hverjir ekki. En þó svo að við verðum ekki öll saman í bekk að þá verðum við samt bara að hafa alltaf sameiginlegt fyrirpartý hjá 4.X og 4.S.. það bara gengur ekkert annað ef við erum að fara að splundrast svona.
En eins og titillinn gefur til kynna að þá eru flutningar í fullum gangi núna og er ég bara í smá pásu frá þeim núna. Ég þarf að fara í gegnum ALLT dótið mitt og ALLA gömlu kassana mína niðrí geymslu og fötin mín og þarf að henda og henda eins og ég get. En núna var ég að koma úr geymslunni þar sem voru fuuuuullt af kössum frá þv´´i að ég átti heima á Egilsstöðum sem höfðu ekkert verið opnir síðan ég pakkaði því niður 9.ára. Haha og ég var að finna bækur þar sem ég var að skipuleggja ferðalögin mín og afmælin mín og svona pínulitla bók þar sem ég skrifaði strákana sem ég var skotin í þá:$:lol: .. uu..ee..hehe=P svo bangsana sem ég hafði búið sérstaklega um í kassana svo þeim myndi líða vel í þessum ljótu kössum.. breiddi sænginni yfir þá og sumir voru í sér svefnpokum sem ég hafði saumað sjálf=P ég var algjör bangsamanneskja og er það kannski bara enn! Svo var allt barbíið mitt, dúkkurnar, plasteldhúsáhöldin og dúkkulísurnar og Scala dúkkurnar og svo voru heeeeellingur af öðru fáranlegu dóti sem var mjööög gaman að rifja upp minningarnar á og hlægja sig máttlausa af s.s. ég og mamma vorum þarna tvær að skoða þetta. Já ég átti svo sannarlega mikið af dóti, enda ekki annað hægt en að dekra smá einu prinsessuna á heimilinu þar sem ég er eina stelpan af 4 strákum.

En aaaallavega þar sem þið vitið þetta nokkur að þá er ég að fara að flytja í Stórholt 37 með honum stóra brósa að þá datt mér í hug svolítið krúttlega hugmynd, sem mig langar geðveikt að framkvæma og það er að halda svona annað slagið teboð.. EKKI tebó heldur teboð=P og þá má auðvitað ekkert sleppa að hafa te á könnunni, sama hvort fólk drekki það eða ekki. Þá verður þetta líka eitt af svona bekkjarsamkomunum okkar=) hehe æji kannski er þetta bara ekki krúttlegt, en kannski mun hugmyndin þróast eitthvað.. sjáum bara til.. vonum bara að einhver hafi nennt að lesa þetta blogg af því að ég þurfti að skrifa það tvisvar!! þar sem þetta strokaðist út=/ =D haha við sjáumst krakkar, er farin að pakka og endilega segið ykkar skoðanir..

kveðja,
Heiðrós

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 19:53:08 / 3bekkurc

4.s vs 4.x

Hey í hvaða bekk eruð þið?

Ég er allavega í 4.s og Viktoría líka og ég veit að Lilja og Íris eru í 4.x...

Bömmer

Ragna


» 24 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 19:58:59 / 3bekkurc

Það er komið að því stelpur

Loksins Loksins, komið aðstelpukvöldi!!:haha:.

Heyrði e-h fólk niðrí bæ bara "ohh djöfull væri ég til að komast inn í þessi stelpukvöld hjá 3-C maður, hef heyrt að þau séu geðveik":o og ég bara neii bara VIP skiluru;)

Að þessu sinni verður það haldið heima hjá mér að Baughúsum 50 og verður kveikt á grillinu og allir koma með e-h gott. Birna, ég veit þú kemur með steik;):lol: Komið bara með það sem þið viljið grilla og ég sé svo um drykki og verð með e-h yndislegt í eftirrétt:D

En heyrðu þá er ekkert eftir nema ákveða dagsetningu.:DEndilega kommentið og segið hvaða dagur hentar ykkur best á milli 3. og 6. júlí

Vonandi fáum við gott grillveður:P

Sigríður:haha:


» 22 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 17:17:00 / 3bekkurc

hvid sommer

Er einhver sem á hvid sommer og er til í að lána hana í sumar? Vinkona mín er í sumarskóla og hún finnur hana ekki neins staðar.

Ragna


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 20:19:13 / 3bekkurc

strumpabuxur

góðan dag góðu bekkjarsystkini mín :) í dag var ég blaut, ójá ég þurfti að vera hálfnakin í ofursvölu appelsínugulu pollabuxunum mínum..þetta var allt 3 krökkum að kenna: viktoríu, kristó og soffíu. ef einhver býðst til að myrða þau er það þeim guð velkomið :evil: allavegana börnin góð ætla ég ekki að tala bara um bleytu dagsins í dag heldur bleytu sunnudagsins 25. júní. hugmynd að skella okkur þá í bláa lónið öll saman :D ég á samt eftir að hringja og tékka á þessu..en vildi bara biðja ykkur að taka þennan dag frá :) ég hringi svo í ykkur og læt ykkur vita með þetta þegar ég hef aflað nægra upplýsinga. ég held allavega að það verði ógeðslega gaman krakkar mínir að hittast öll saman, þar sem við erum nú ekkert búin að hittast..maður er kominn með fráhvarfseinkenni. en ég bið bara að heilda ykkur öllum í bili og vona að þið hafði það sem allra allra best ;)
-lilja


» 43 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 16:11:18 / 3bekkurc

HEIÐRÓS SKRIFAR:

:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D    :'(:D:D:'(:D:D:'(:D:D:'(:D:D:'(:D:D

VITIÐI BARA HVAÐ!!!! ég var að frétta að ég náði BÁÐUM PRÓFUNUM!!!!!!! ÉG KEM MEÐ Í 4. BEKK!! vá!! þegar ég hringdi fékk ég SJOKK!!.. etta er í fyrsta skiotið sem ég einfaldlega GR'ET af gleði!! vá þetta er svo MIKIÐ!! ég var svo VISS um að ég hafi fallið á þeim báðum aftur.. ég man að í söguprófinu að þá bara.. FOKK þetta er GEÐVEIKT erfitt próf, og e´g er að falla á ensku líka og þá fer ég aftur í 3. bekk. en svo bara.. NEI ég fer ekki aftur í 3. bekk og fer bara í MH eða eitthvað.. svo kom bara í ljós að ég NÁÐI!!! VÁ ÉG ER SVO ÁÁÁNÆGÐ! ÉG GRÉÉÉT AF GLEÐI!! Ennþá að jafna mig!:D
og jább! við sjáumst sko í 4. bekk!=D og þá mun ég sko STANDA MIG VEL! af því að ég veit að ég stóð mig ekki eins vel í vetur eins og ég gat gert í grunnskóla, svo þetta er ALLT saman innst inni..=D :!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::D:D:D:D:haha::haha::haha::haha:

» 11 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 16:55:51 / 3bekkurc

bara 3 mínusar!!!

Jæja þá er bílprófið komið...
Fór í prófið í dag og fékk bara 3 mínusa, mér fannst það geggjað miðað við að ég hélt að ég fengi svona níu... Var næstum búin að bakka á.
Allavega ætla ég að vera driver helgarinnar og rúnta um á einum svona:

Það er að segja ef ég fæ hann lánaðan...

Og ef ég er í miklu stuði þá krúsa ég bara um á einum svona:

Nema hann er á stærri dekkjum (tók prófið á svona bíl)

Sjáumst um helgina!

Ragna


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 14:01:25 / 3bekkurc

MH vs. MR

Jæja, nú stend ég á vegamótum. Veit hreint ekki hvað ég á til bragðs að taka. Val mitt stendur á milli tveggja skóla. Annar er mér mjög kær, Menntaskólinn í Reykjavík og hinn lýst mér mjög á, Menntaskólinn við Hamrahlíð. Úff... ég veit ekkert hvað ég á að gera, hef ekki enn fengið að vita hvort að ég kemst inn í MH en ef að ég kemst inn þá er ég pínu smeyk að velja.. ææææ... sá á kvölina sem á völina. En jæja krakkar mínir... við verðum nú samt sem áður ekki saman í bekk framarjavascript:editor.insertHTML(':frown:');.... Ég hef ekki hugmynd um hvað ég er að segja núna.. ég hafði bara ekkert að gera svo að ég ákvað að blogga, hlutur sem að ég hef ekki gert síðan í 8. bekk og er orðin vægast sagt mjög riðguð í þessum málum. En allavegana þá höldum við bara áfram að vonast til að fá gott sumar veður og svo hlakka ég til að sjá ykkur, sem fyrst bara... Verið þið sæl kæru vinir og megi ljós guðs lýsa ykkur réttu leiðina kv. Hafdís

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6